Sunnudagurinn 18. Nóvember |
| [22:04] Ætla að byrja á að aðvara mína venjulegu lesendur við því að þetta blogg verði þeim sennilega leiðinlegt og/eða torskilið. Sú er nefnilega raunin að ég nenni ekki á nokkurn hátt að ræða "það sem hefur verið að gerast undanfarið" í lífi mínu, hér á Höfn, og ætla ég því að skipta yfir í mun skemmtilegri og áhugaverðari umræðu. Það má síðan liggja á milli hluta hvort ykkur finnist þetta skemmtilegt og áhugavert.
Ætli ég neyðist ekki til að byrja á því nýjasta í vefheimum þessa dagana. Skapari.com er sennilegast ein hlægilegasta vefsíða sem ég hef séð. Það er jafnframt, mjög líklega það eina góða við hana. Sorinn sem viðgengst á þessari síðu er slíkur, að þegar maður les hana er maður mitt á milli þess að hlægja og æla úr pirringi. Ég þarf nú varla að fara mikið í saumana á því sem stendur á þessari síðu, flest þarna er augljóslega beinþýtt upp úr einhverjum svipuðum "pro-white" síðum erlendis.
Ein af þessum "pro-white" síðum er síða Hal Turner, sem er eitthvað þjóðernissinna erkifífl í Bandaríkjunum. Þeir sem standa fyrir skapari.com eru greinilega í einhverju sambandi við hann því að hann er víst skráður fyrir léninu skapari.com. Íslenskir fjölmiðlar reyndu að hafa samband við hann til að spyrjast fyrir um þetta en það eina sem hann gerði var að hóta þeim öllu illu, enda fífl. Spurningin er síðan bara hvort að þetta sé ekki bara annað önnur samtök þeirra Vigfússyna. Það er að segja bræðranna sem færðu íslensku þjóðinni Félag íslenskra þjóðernissinna fyrir nokkrum árum. Annar hvor þeirra tapaði seinna dómsmáli útá "pro-white-speech" og þess vegna er skapari.com nafnlaus? Það skiptir svosem ekki miklu máli vegna þess að hver svosem heldur þessari síðu úti er fáviti.
Annað merkilegt sem ég hef rekið mig á undanfarið eru innlendar umræður um loftlagsmál. Hannes Hólmsteinn Gissurarson er, sýnist mér, orðinn talsmaður íslenskra "hnatthlýnunar-af-manna-völdum-andstæðinga". Hann hefur allavega verið duglegur við að rífast um þetta undanfarið. Ég ætla nú ekkert að vera að ræða mína skoðun á þessu máli, enda er hún tiltölulega hlutlaus og langt síðan ég tók þá ákvörðun að fylgja orðum Bertrand Russell's og bíða á meðan sérfræðingarnir kljást um þetta mál. Hannes er þó sjálftitlaður sérfræðingur um þessi mál, eins og svo margt annað, og er því knúinn til að rífast um þetta. Eina innlögn mín í þetta mál er hinsvegar eftirfarandi: Hvernig ætlast Hannes, til þess að fólk taki hann alvarlega, þegar hann er með lagið "Non, je ne regret" eftir Edith Piaf, í mp3 spilaranum á síðunni sinni. Ég meina afgangurinn af vefsíðunni hans hlýtur bara líka að vera grín.
Það þriðja merkilega sem ég var að komast að tengist að þessu sinni mér sjálfum. Ég tók nefnilega eftir því í dag, þegar ég var aðeins að dunda mér við að spila annan píanó konsert Rachmaninoffs, að ást mín á dimm hljómum, er nú vart heilbrigð. Ég hafði svosem alltaf vitað það, en þarna lýstist þetta algjörlega upp fyrir mér. Í kjölfarið af þessari uppgötvun minni fór ég inná last.fm prófælinn minn og las aðeins yfir "Top tracks" listann hjá mér. Og viti menn, örugglega 90% af lögunum á þessum lista innihalda allavega einn dimm hljóm og sum lögin byggjast að stóru leyti upp á þeim. Já, þetta fannst mér sko merkilegt, en þar sem ég tel líkurnar á því að öðrum finnist þetta merkilegt hverfandi ætla ég nú ekki að segja meira.
En jébb, ég er farinn að læra, skemmtið ykkur fallega.
Laugardagurinn 6. Október |   | [18:41] Ég er kominn frá Finnlandi, reyndar fyrir heilli viku en það er aukaatriði. Sú ferð var ein stór steik frá A - Ö, mjög skemmtileg steik þó! Við kynntumst alveg slatta af Finnum, og hefðum eflaust kynnst svona 5x fleirum ef Finnar væru almennt betri í ensku. En það breytti því þó ekki að núna þekkjum við nokkra Finna sem við getum leitað til ef að við villumst einn daginn til Finnlands.
Finnski skólahópurinn sem við vorum mikið með þarna úti samanstóð af 10 einstaklingum og þegar við höfðum loksins hitt þá alla vorum við ekki alveg viss um hvað við ættum að gera. Þeir voru einfaldlega hver öðrum steiktari, og svona 2 þeirra töluðu ensku. Fljótt komumst við þó að því að samstarfsskólinn okkar var einhversskonar garðyrkju-, landbúnaðar- og umhverfisskóli, og þar kom ástæðan.
Þetta kom þó ekki að sök því að við, Íslendingarnir, vorum á heimavistinni hjá þessum skóla og þar sem það fréttist fljótt að einhverjir "damn crazy Icelanders" væru komnir á vistina létu margir sjá sig hjá okkur, og sem betur fer töluðu sumir þeirra ensku. Og var þetta helst það fólk sem við kynntumst, auk þessa tveggja í samstarfshópnum sem töluðu ásættanlega ensku. Þegar við síðan komum heim, fyrir u.þ.b. viku, hafði ég fengið email frá einhverjum þarna sem sagði meðal annars: "We really started to miss you as soon as you left, and we're really looking forward to seeing you guys again! You were awesome." Hversu töff erum við?
Ég gæti skrifað og skrifað um þessa Finnlandsferð, hún var það mögnuð, en ég nenni því nú ekki og bendi ykkur frekar á bloggfærsluna hans Hödda.
Þegar heim var síðan komið fór allt að ganga sinn vanagang. Mín afar-götótta stundatafla fór þar fremst í flokki en ég er farinn að hallast að því að ógötóttar stundatöflur séu mun betri fyrir heilsu fólks.
Í gær var síðan helvíti undarlegur dagur. Það er að segja dagurinn sem útskriftarhópur FAS árið 2008 fór í sína fyrstu og líklega seinustu áheitagöngu. Eins og kannski einhverjir vita höfðum við, útskriftanemendurnir, ákveðið að taka okkur til og ganga þvert yfir sýsluna, eina 220 kílómetra. Klukkan 10 í gær mættum við síðan útí FAS, í mjög misjöfnu ástandi eftir bjórkvöld á fimmtudeginum, allir þó staðráðnir í að ljúka sínum 15-16 km!
Gangan hafði að sjálfsögðu verið þaulskipulögð og því fóru allir beint á sína staði að ganga/hlaupa. Ég lagði upp með að ná þessum 16 kílómetrum mínum á 90 mínútum og með hjálp Bítlanna og Chopin náði ég því takmarki og gott betur, eða um um það bil 80 mínútum. Reyndar var ég dauðþreyttur þegar ég loksins kom að bílnum mínum en .. vei.
Þegar ég var búinn með það var planið að ég myndi sækja Hauk, Olgeir, Sindra og Atla - í þessari röð. Ég byrjaði því á að sækja Hauk þegar hann var búinn að hlaupa. Næst Olgeir. Á þessum tímapunkti bilaði bíllinn í Freysnesi, og Atli Már og Sindri stóðu einhversstaðar útí rassgati, löngu búnir að hlaupa 16 kílómetrana, að bíða eftir okkur. Til að gera langa sögu stutta þurftu þeir tveir að bíða í cirka 3 tíma til viðbótar eftir að einhver kæmi frá Höfn að sækja þá, og okkur - sem vorum reyndar aðeins betur staddir inná sjoppu útí Freysnesi.
Þegar við hittum Sindra og Atla hafði Atli t.a.m. labbað 20km+ vegna þess að hann þurfti að eigin sögn að "labba til að halda á sér hita,". Snillingurinn hafði þar að auki ekki tekið með sér gemsa og vissi því ekkert hvað var í gangi þegar hann var loksins sóttur. Þegar við síðan komum heim - klukkan hálf átta - var ég svo dauðþreyttur að ég sofnaði klukkan 22 eða eitthvað svipað.
Ég gæti eflaust talað mikið lengur um þennan ágæta "göngudag" okkar en ég nenni því nú ekki. Ætla í staðinn að taka fyrir einhverja fullyrðingu sem ég sá fleygt einhversstaðar, hún hljóðaði svo: "Hvaða orð í íslensku er með flestum A-um? 'Vararafaflgjafana' (þágufall)" (7x a). Þessu gat ég nú varla trúað og eftir smá tíma hafði ég nördað upp forriti til að hrekja þetta og viti menn: 'atlantshafsbandalagsríkjanna' er með 8x A-um. Eruð þið ekki stolt af mér?
Annars er fótboltamót og pakkhúskvöld á eftir. Á fótboltamótinu eigum við titil að verja, eigum svosem ekkert til að verja á pakkhúskvöldinu en það verður samt eflaust ágætt þar líka. Mætið.
Fimmtudagurinn 20. September |   | [02:33] Æ, ég ætlaði bara að segja að ég væri farinn til Finnlands að eyða tíma og peningum. Annars líður mér ágætlega sko.
Annars er það helst í fréttum að heimasíða nemendaráðs FAS er alveg að koma upp. En í forritun & hönnun þeirrar síðu hef ég eytt slatta tíma í. Skulum bara vona að hún komi til góðra nota fyrir skólann og samfélagið í heild sinni.
Uppá skrifborðinu er ég síðan með nokkur verkefni sem þarf að hrinda í framkvæmd, sparkið í mig.
np: "Eluvium - Copia (the album)", "Fréderic Chopin - allt", "Okkervil River - The Stage Names (the album)", "The Beatles - Real Love", "The One AM Radio - In The Time We've Got", "Caribou - Andorra (the album)", "Electric Light Orchestra - allt discographyið", etc, etc, etc.
PS: Er búinn að hlusta á 49,500 lög síðan ég fékk mér last.fm accountinn minn, sumsé næstum 50 þúsund (fattaðirðu það?). En þetta mun gera einhver 62 lög á dag, í winamp. ;s
PS2: Er kominn með eitthvað tónlistar myspace dæmi sem er að vísu vitavonlaust, ef ykkur finnst gaman að hlusta á mig spila Nocturnes eftir Chopin eða eitthvað frumsamið lag megiði samt kíkja hingað. Mun eflaust henda einhverju fleiru þarna inn með tímanum.
PS3: Vita ekki örugglega allir sem lesa þetta hvað "The X-Files" er/var?
[21:38] Ætli það sé ekki kominn tími á eins og eitt blogg, svona í ljósi þess að skólinn er hafinn og sumarið á enda, aðallega þó vegna þess að mér leiðist alveg últra mikið. Allir vinir mínir ku-u vera að spila leik á Djúpavogi og ég komst ekki með vegna meiðsla sem ég hlaut í hjólaslysi í dag, reyndar líka vegna þess að ég nennti ekki á Djúpavog en það er önnur saga.
Allavegana þá er skólinn byrjaður og þar er ég skráður í 28 einingar en þrátt fyrir það er ég í heilum 12 götum yfir vikuna. Ég hef mest verið í cirka 3 götum yfir vikuna hingað til (þá meina ég síðan ég byrjaði í fyrsta bekk), þannig að þetta er ansi nett breyting. Áfangarnir sem ég er í eru ekki af minna taginu, t.a.m. STÆ 513 og 503 og verkefnaáfanginn TÖL 303, en það kemur þá vonandi í veg fyrir að mér leiðist eins og núna í nánustu framtíð.
Fyrir utan skólann mun ég síðan vera í tónskólanum eins og alltaf eitthvað að steikjast. Síðan ætlum við í Gettu Betur liðinu að taka nokkrar léttar æfingar til að geta kannski komist lengra en fyrstu umferð í næstu keppni. Fyrir utan það er maður síðan nettur í fjallgöngunum sem ég ætla án nokkurs efa að stunda í haust, þangað til að það verður ofur kalt. Meðframt fjallgöngunum er ég síðan búinn að ákveða íþróttina sem ég ætla að stunda í framtíðinni, þ.e. fyrir utan fótbolta sem er hvort eð er öm. Þessi íþrótt heitir, tada: klettaklifur, og er bara töff. Eina vandamálið með hana er aðstaða en til að iðka hana þarf ég víst að skreppa útí Öræfi sem er ekki jafn töff. En jæja, þetta er allt á byrjunarstigi, verð eflaust búinn að drepa mig eftir nokkra daga. Mamma var b.t.w. ekki ánægð með að heyra þessar fregnir ;].
En já, þar sem ég er núna búinn að missa mig í leiðindum ætla ég að færa mig yfir í eitthvað skemmtilegra: Á föstudaginn verður busadæmið hjá FAS, það verður mega nett. Mega nettasta dæmið verður þó um kvöldið, það verður án nokkurs efa óleiðinlegt. Seinasta helgi var líka fín, fyrir utan að ég var rúmliggjandi allan sunnudaginn. Ætla bara að vona að þetta sé ávísun á skemmtilegt haust eða e-ð.
En já, var sem sagt að fatta núna að það er skemmtilegra að gera ekki neitt en að blogga, þannig að ég er farinn að gera ekki neitt áfram.
np: "Electric Light Orchestra - Shangri-la", "Electric Light Orchestra - Heaven only knows", "The Turtles - Happy Together ;@" og eitthvað fleira.
Miðvikudagurinn 15. Ágúst |   | [23:08] Jæja, þá er sumarið senn á enda og skólinn að taka við. Eins og venjulega er ég með nokkrar gamlar bækur sem ég þarf að losna við. Ef einhverjum vantar eitthvað hér að neðan getur sá hinn sami talað við mig á msn eða svarað með commenti. Verðlagningin er 50% m.v. nýja bók niðrá bókasafni.
DAN 103 - Danska 103Dansk er mange ting [smá útkrotuð]- Suzanne og Leonard
SAG 103 - Saga 103
LAN 103/303 - Landafræði 103/303Maðurinn, auðlindirnar, umhverfið- Ríkar þjóðir og snauðar
STÆ303 - Stærðfræði 303- Stærðfræði 3000: Talningafræði, hornaföll og vigrar
STÆ313 - Stærðfræði 313
ÍSL303 - Íslenska 303
ENS303 - Enska 303
[19:34] Jæja, ég og dísa sys vorum að koma úr fjallgöngu (geitafell > efstafellsbotn > geitafellstindur - 1026m) og ég verð nú að skella inn einhverjum af myndunum sem við tókum í þessari líka frábæru göngu. Þær fokkuðust reyndar nett upp þegar ég var að shrinka þær en jæja, þið verðið að þola það.

Ég á toppnum með lónið í bakgrunn.

Dísa í sama settings, reyndar aðeins nær.

Ooooog bakið á mér með Hornafjarðarfljót í bakgrunn.

Og að lokum ein tæmer mynd af okkur systkinunum, frekar steikt :).
Ef ég var ekki officially orðinn áhugamaður um íslenska náttúru og það allt þá er ég orðinn það núna. Geeky? ... DON'T CARE. Takk og bless! ;]
[22:10] Mér leiðist. Ég er búinn að vera frá því klukkan 7, þegar ég kom heim úr vinnunni, að taka til inní húsi og útí garði. Ég veit eiginlega ekki alveg af hverju. Jæja, mamma ætti allavega að vera ánægð. En ujá. Það hefur margt á daga mína drifið frá því að ég bloggaði hérna seinast, en það ku hafa verið þann 5. júlí s.l. Eins og venjulega ætla ég mér nú ekki að skrifa neitt of mikið um það enda hef ég betri hluti að gera en að blogga.
En byrjum allavega núna seinustu helgi þegar Landsmót UMFÍ var hér á Hornafirði. Við í bæjarvinnunni höfðum verið nett lengi að undirbúa allan andskotann tengt þessari hátíð þannig að ég var bara nokkuð stoltur af því hvað þetta fór allt saman vel fram. Einnig var ég sjálfboðaliði (töff!), sem þýddi að ég vaknaði klukkan 9 á laugardaginn og sunnudaginn og var að dæma hástökk til 2-3 um daginn. Það var svosem fínt. Á föstudaginn hafði Hjalti bæjarstjóri beðið mig um að spila í einhverju partýi útí Nýheimum og ég verð að viðurkenna að ég vissi ekki alveg við hverju ég átti að búast þegar ég mætti. Allavega jókst stressið (sem var reyndar lítið fyrir) svolítið þegar ég sá að þarna voru samankomnir allnokkrir ráðherrar og þingmenn, svo ég gleymi nú ekki öllu 1337-teyminu hérna á Hornafirði. Það blessaðist þó allt. En já, eins og ég segi þá gekk þetta allt vel og á sunnudaginn var þessu síðan slitið með all-nettri flugeldasýningu og balli á víkinni sem ég fór nú reyndar ekki á.
Þetta sumar hefur nú ekki einkennst af jafn miklu fyllerí og ég hélt að það myndi gera, t.a.m. drakk ég (sama og ;) ekki neitt um Verzló. Helstu fylleríin hafa verið L.U.N.G.A. & Humarhátíð, kannski næsta helgi bætist síðan við þetta þegar hlöðuballið & flugeldasýningin verða. Þrátt fyrir það hefur þetta sumar verið hið ágætasta. Að vera flokksstjóri í bæjarvinnunni er bara hreint ekki slæmt starf þó að maður geti stundum látið fólk fara í taugarnar á sér, síðan eru nú líka hinir sem eru bara töff og vega þetta þ.a.l. upp. ;]
Sumarið er þó ekki búið ennþá enda mun ég varla hætta að vinna fyrr en skólinn byrjar, þann 22. ágúst. Ég ætla mér þó að taka smá frí í næstu viku og fara í fjallgöngu/r með Dísu systur en hún er að fara aftur til U.S.A. á næstunni og þar sem við höfum bæði mikinn áhuga á almennri hreyfingu & náttúrunni ætlum við að skreppa einhvert við tækifæri. Dugleg systkini!
Síðan fer náttúrlega skólinn að hefjast, ég hlakka svona nett til að byrja í honum. Vandamálið verður hinsvegar að ég verð í ofur mörgum fögum og mun þ.a.l. mikinn minn tími fara í að læra, líkt og seinustu önn. ÍSL503, STÆ503, ÞÝS303, EÐL103, EFN103, LÍF103, ÍÞR211 og síðan það létta: TÖL303 og STÆ513. Mmmmm, hljómar ekkert of vel. Einnig er ég að spá í að massa miðprófið á píanóið (kominn tími til?) þannig að það verður allavega e-ð að gera hjá mér í vetur.
Að lokum vill ég benda fólki á að fokkast til að búa til Facebook account. Þið munið hvort eð er gera það fyrr eða síðar þar sem þetta mun eventually koma í stað myspace. Þið þurfið síðan að joina "Iceland" networkið og þá getiði fundið mig...ví!
En jæja, ég er farinn út að koma mér í form. PS; þá lagaði ég um mig draslið, nennti samt ekki að vanda mig of mikið við það, meira svona uppfæra það m.v. daginn í dag.
np: "The Beatles - Real Love", "The Beatles - Dig a Pony"
[01:00] Sælir. Sit bara hérna í makindum mínum og hlusta á Invincible með Muse, kemur alltaf upp einhver undarleg tilfinning þegar ég hlusta á þetta lag. Hugsanlega vegna þess að það er of mikil snilld, hvað veit ég?
Eins og allir vita var Humarhátíðin margrómaða seinustu helgi, bróðir minn - betur þekktur sem Jón í Mosaeyði - mætti á svæðið með eitthvað Skálafellslið sem gisti heima. Hátíðin hófst á fimmtudaginn, allavega hjá flokkstjórunum í bæjarvinnunni. Því miður ekki hjá krökkunum sem mættu daginn eftir og sáu flokkstjóra sína (þá sem mættu) - vægast sagt illa ömsaða. Sem betur fer hættum við reyndar klukkan 12:00, enda hefði ég ekki meikað mikið meira.
Vegna þynnku átti ég mjög erfitt uppdráttar á föstudaginn. Var mest allan tímann heima hjá Sindra að spila á hið margfræga Sindra-hljómborð, við mikinn fögnuð lýðsins. Síðan kíktum við reyndar eitthvað út en ég fór nú fljótt heim.
Laugardagurinn rann hinsvegar upp með mikilli bjartsýni á góðan dag, var reyndar líka þunnur þá en varð fljótt eiturhress. Reyndar alltof eiturhress. Jafnvel beyond eiturhress. Jæja whatever, long story short: Ég var mættur útá svæði um svona 9 og man ekki eftir neinu milli 11:00 og 4:30....eða eitthvað. Get víst ekki tímasett það nægilega vel. Það eina sem ég man er að það var mjög gaman....held ég. Ég og Jónsi vorum allavega ofurnettir þarna hef ég heyrt. Ef ég gerði eða sagði eitthvað við einhvern sem og honum líkaði ekki þá afsaka ég það hér með.
Allavega var Humarhátíðin þetta árið í grófum dráttum mjög fín. Hefði kannski verið til í að hitta fleira fólk (og muna eftir því þ.e.a.s.), en annars var þetta bara mjög fínt.
Annars er voðalega lítið að frétta af mér, vinnan mín í þágu sveitarfélagsins tekur upp mest allan minn frítíma. Mamma og pabbi koma á fimmtudaginn í næstu viku og ég hlakka alveg nett til að fá eitthvað annað að éta en heimatilbúinn hamborgara með tveimur eggjum og nánast engu öðru. Ætla líka að drullast til að lesa "Harry Potter & The Order Of Pheonix" áður en helvítis bíómyndin kemur út (miðvikudaginn). Átti einhverra hluta vegna alltaf eftir að klára hana, enda með eindæmum löng. Einnig er planið að taka (loksins!) upp 2-3 lög á mega góða Skype-micinn minn og henda á myspace-ið mitt. Myspace er víst ekki kúl án þess að vera með svona lög í dæminu...
Og já, stuð um helgina?
Þar til næst.
[00:05] Hæ. Mér leiðist - greinilega, fyrst ég er jú að blogga.
Hef svosem voðalega fátt að segja. Voðalega lítið að gera undanfarið annað en að vinna (steikjast) og sofa. Ég er sumsé búinn að vera opinber starfsmaður í næstum mánuð. Fyrstu þrjár vikurnar vorum við flokkstjórarnir bara eitthvað að gera hitt og þetta en síðan mættu undirmenn okkar til liðs við okkur á mánudaginn. Hef nú heyrt að ég sé með svona nett góðan hóp m.v. hjá Ella & Árna - allavega eru fyrstu tveir dagarnir búnir að vera mjög fínir hjá mér. Erum samkvæmt nýjustu fréttum að búa til bæjarvinnu-clan í Call Of Duty II, sýnist að það spili bara allir COD í þessari blessuðu bæjarvinnu. Síðan er bara að bíða eftir að bæjarvinnublogsíðan eða whatever komi upp. ;)
Það helsta sem hefur gerst í lífi mínu að undanskildu vinnunni er að ég fékk nýja tölvu, eða öllu heldur nýja íhluti í turninn minn - móðurborð, örgjörva, vinnsluminni og harðan disk. Þeir sem vita ekkert um tölvur vilja væntanlega skippa þessum hluta. Það virtist reyndar ekkert ætla að ganga að koma þessu í gang þegar ég fékk þetta á miðvikudaginn en þegar allt var komið í turninn kom í ljós að skjákortið og/eða móðurborðið var frekar fucked up. En Pétur í Tölvutækni reddaði þessu algjörlega og sendi mér bara strax nýtt móðurborð og skjákort og ég sendi honum bara hitt í staðinn. Mæli náttúrlega tvímælalaust með því að þið eigið öll ykkar tölvuviðskipti við Tölvutækni. Allavega er tölvan mín komin í gagnið og virkar bara frábærlega.
Annað sem hefur gerst undanfarið er að ég er varð opinber meðlimur í Vantrú. Kemur nú varla einhverjum á óvart :). Allavega er ég búinn að ákveða að reyna að leggja mitt af mörkum í baráttuna við ruglinu sem veður uppi í okkar - annars fallega - samfélagi. Ég meina, horfið á myndbandið þarna. Já! Vatni finnst Beethoven betra en þungarokk! Gæti ælt út heimsku...eða þið vitið...
Annars hef ég svosem voðalega fátt annað að segja. Jú, reyndar er ég að fara að fá síma á morgun, ekki kannski alveg þann fyrsta - meira svona sá 7undi ef mér skjátlast ekki. Týndi mínum víst þarseinustu helgi. Passaði mig þó á að hafa þennan högg-, vatns- og rykheldan, og síðan varð að sjálfsögðu að vera myndavél á honum til að ég gæti GSMbloggað! Allavega megið þið adda mér: 823-9745 á næstunni.
Og já að lokum: Ég heyrði líklega eitt besta lag sem ég hef heyrt "during the credits" á mynd sem ég var að horfa á. Lagið er cover á lagi eftir klassískan gítarsnilling sem hét Francisco Tarrega og heitir "Recuerdos de la Alhambra" (e. minningar um Alhambra). Náunginn sem coveraði það heitir Mike Oldfield en hann þekkja flestir sem "gaurinn sem bjó til lagið Moonlight Shadow". Allavega er þetta bara mest töffaðasta lag í heimi og heitir Etude í flutningi Oldfield´s. Er að sjálfsögðu búinn að búa til mína eigin útgáfu á píanóinu, kannski ég skelli henni hérna inn við tækifæri.
Anyhow... hér með lýkur þessu ofur skemmtó bloggi.
[01:13] Langt síðan ég bloggaði og margt gerst í mínu fagra lífi. Ég nenni nú ekki að þræða það allt saman en það er allavega skammt frá því að segja að ég kláraði prófin, en þau voru svona helsti þrándur í mínum götum (nei, aldrei skilið þetta) síðustu daga.
Prófin gengu bærilega, fékk 10 á fjórum prófum að þessu sinni, enda töffari. Það breytti því þó ekki að ég fékk einungis 3x10 í áföngum (töl203, stæ413, íþr), afgangurinn var 4x9 (sag203, fru173, ísl403 og lan203), 8 með hjálp hins nöturlega stæ403 prófi og að lokum 7 í þýsku sem er auðvitað bara merkur árangur m.v. vinnuframlag mitt til þess áfanga. Að þessu sinni varð ég "stúdent" úr landafræði & sögu sem er náttúrlega bara æði - og þá er nánast bara ein önn eftir, þó að ég útskrifist nú ekki fyrr en eftir tvær!
Alþingiskosningarnar gengu yfir með öllu tilheyrandi. Ég hafði að sjálfsögðu fengið kosningarétt 20. febrúar s.l. og ég nýtti hann mér að sjálfsögðu. Áður hafði ég þó lagst djúpt ofan í öll þau pólitísku álitamál sem ég hafði ekki þá þegar myndað mér skoðun á, og já, reynt að mynda mér einhverja skoðun. Ég hafði reyndar verið flokksbundinn Sjálfstæðisflokkinum all-lengi eða síðan ég var á einhverju fylleríi og Jóhann Bergur sagði mér að skrá mig í hann. Þrátt fyrir það, og að fjölskyldan mín er meira og minna einnig í Sjálfstæðisflokkinum, komst ég að þeirri niðurstöðu að ég ætti flest sameiginlegt með honum. Á meðan beygðu flestir jafnaldrar mínir í vinstri átt og hrópuðu: "Sjálfstæðisflokkurinn?!?! Fokking kapítalisti. Kapítalismi leiðir skooo bara til þess að ríkir verða ríkari og fátækari fátækari. Veit samt ekkert hvað kapítalismi er sko, hef samt heyrt að ríkir verða ríkari og fátækir fátækari!". Reyndar sagði (vonandi) enginn vinur minn nákvæmlega þetta en ég er orðinn ansi þreyttur á fólki sem hendir fram svona fullyrðingum og getur síðan ekki á nokkurnveg fært rök fyrir þeim.
Síðastliðinn mánudag byrjaði ég síðan að vinna. Eins og flestir vita er ég verðandi flokkstjóri í bæjarvinnunni. Í þessari viku höfum við flokkstjórarnir verið að sinna ýmsum, mismikilvægum, störfum og verðum að því næstu 2 vikurnar eða þangað til að undirmenn okkar mæta til vinnu en þá fyrst byrjar fjörið! Þetta sumar getur eiginlega ekki klikkað og þar liggja nokkrar ástæður að baki: 1. allir flokkstjórarnir eru megatöff, 2. það að vera flokkstjóri er megatöff, 3. flokkstjórastarfið bíður upp á útiveru (og þ.a.l. fótbolta), langar pásur, sveigjanlegan vinnutíma og svo framvegis. Við nýtum til að mynda hvert tækifæri undanfarið til að fara í leikinn "öm" sem er einskonar afsprengi af hinum þjóðþekkta leik asna. Reyndar er hann alveg eins asni með öðru nafni.
Samhliða vinnunni byrjaði ég að hlusta á ýmis trúleysingja (e. atheist) podköst frá fólki eins og Richard Dawkins, James Randi og fleirum og ef ég var ekki antitheist (e. herskár trúleysingi) þá er ég orðinn það í dag. Er orðinn svo viss um vantrú mína að ég held að ég myndi ekki snúast til trúar þó að ég myndi lifa í Krossinum í umsjá Gunnars Þorsteinssonar í hálfa öld.
Áður en ég fer meira að tala um trúmál - heitustu umræðu dagsins í dag - ætla ég að leggja mig og þ.a.l. flýta því að helgin komi ... Klaustur! Enda þetta með nokkrum atheist quotum fyrir lýðinn:
"All thinking men are atheists." - Ernest Hemingway
"I do not believe in a personal God and I have never denied this but have expressed it clearly. If something is in me which can be called religion than it is the unbounded admiration for the structure of the world so far as our science can reveal it."
Albert Einstein (pantheism - sama og atheismi)
"Religion is excellent stuff for keeping common people quiet." - Napoleon Bonaparte
"God is a concept by which we measure our pain" - John Lennon
"With soap, baptism is a good thing." - Robert G. Ingersoll
"Religions are all alike – founded upon fables and mythologies." - Thomas Jefferson
"Faith, it drives me away,
but it turns me on.
Like a strangers love.
It rockets through the universe.
It fuels the lies, it feeds the curse.
We to could be glorious."
Matthew Bellamy & Muse (úr Glorious af nýju plötunni)
|